Auknar kröfur um mynstursdýpt hjólbarða

í samræmi við nýlega reglugerð nr.736/2014 verða gerðar auknar kröfur um mynstursdýpt hjólbarða frá og með 1. nóvember 2014.  Í frétt um þessar breytingar á heimasiðu Samgöngustofu segir m.a: 

Hjólbarðar bifreiða þurfa að hafa að lágmarki 3,0 mm mynstursdýpt yfir vetrartímann (1. nóvember – 14. apríl) en það er sama tímabil og heimilt er að aka á negldum hjólbörðum. Á því tímabili þarf mynstursdýpt hjólbarða bifreiða til neyðaraksturs að vera að minnsta kosti 4,0 mm. Yfir sumartímann (15. apríl – 31. október) þurfa hjólbarðar bifreiða að hafa að lágmarki 1,6 mm mynstursdýpt en bifreiðar til neyðaraksturs að minnsta kosti 2,0 mm.

Á vef Samgöngustofu segir að þessar breytingar séu alfarið í þágu aukins umferðaröryggis og taki mið af sambærilegum reglum annars staðar á Norðurlöndum þar sem akstursskilyrði að vetrarlagi eru svipuð og hér á landi. Fram kemur að við undirbúning þessara breytinga  hafi verið haft fullt samráð við til dæmis lögreglu, tryggingafélög og rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Með aukinni mynstursdýpt mun veggrip hjólbarðanna aukast og hemlunarvegalengdir styttast. Þess er vænst að breytingarnar muni fækka þeim bílum sem þurfa á aðstoð að halda við minnstu breytingar á færð og jafnframt stuðla að fækkun umferðarslysa.

Sjá nánar í reglugerðinni smelltu hér.