Aukning í umferð á höfuðborgarsvæðini en met ekki slegið

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu árið 2022 reyndist 1,6 prósenti meiri en árið áður. Ekki var þó um met að ræða því örlítið meiri umferð mældist metárið 2019. Umferðin í desembermánuði dróst saman um tvö prósent á svæðinu að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Líkt og á Hringvegi varð samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu, milli desember mánaða, umferðin dróst saman um 2%. Mest dróst umferð saman ofan Ártúnsbrekku eða um 3,4% en minnst á Hafnarfjarðarvegi eða um 0,3%. Í nýliðnum desember mánuði reyndist umferðin mest á föstudögum og minnst á laugardögum. 

Samtals aukning milli áranna 2021 og 2022 reyndist 1,6%. Mest jókst umferð yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 2,5% en minnst yfir mælisnið á Reykjanesbraut eða um 0,8%. Þessi aukning dugði þó ekki til að slá út umferðarmetið, sem sett var árið 2019, en heildarumferðin reyndist 0,3% undir því og stendur þá gamla metið enn, á höfuðborgarsvæðinu.

Metumferð árið 2022 á Hringvegi

Aldrei áður hefur meiri umferð mælst á Hringveginum en árið 2022, met ársins 2019 var slegið. Umferðin í fyrra reyndist einu og hálfu prósenti meiri en árið 2019. Mun minna var ekið í desember 2022 en árið áður og helgast líklega af veðuraðstæðum.