Bensínsprengja Altlantsolíu á Akureyri

Tímamót urðu í sölu á eldsneyti á Akureyri í dag þegar Atlantsolía lækkaði verð á lítranum við sölustöð sína við Baldurnes til samræmis við verðstefnu sína í Kaplakrika í Hafnarfirði og á Sprengisandi í Reykjavík. Félagið býður nú upp á langódýrasta eldsneytislítrann á Norðurlandi.

Bensínlítrinn á Baldursnesi kostar nú 185,5 krónur og dísillítrinn 181,5 krónu, sem er sama verð og á Sprengisandi og í Kaplakrika en almennt listaverð félagsins er í dag 222,7 krónur á lítrann af bensíni og 210,8 krónur á dísillítrann.

Fram kemur í tilkynningu frá Atlantsolíu að  allir viðskiptavinir fá sama eldsneytisverðið á Baldursnesi óháð fríðindakerfum, meðlimagjöldum eða öðrum afsláttarkjörum. Rakel Björg Guðmundsdóttir markaðsstjóri Atlantsolíu segir að í kjölfar þess að félagið lækkaði verð á þessum tveimur stöðum í höfuðborginni hafi komið ákall um sambærileg verð frá viðskiptavinum norðan heiða.

„Bensínsprengjan okkar í Kaplakrika og á Sprengisandi hefur fengið frábærar viðtökur og breytti landslaginu á eldsneytismarkaðinum svo um munar neytendum til hagsbóta. Nú hægt að ferðast á ódýrasta eldsneyti félagsins landshluta á milli,“ segir Rakel.

„Þó Atlantsolía sé eitt minnsta olíufélag landsins hefur fyrirtækið alltaf verið leiðandi í að sprengja upp eldsneytismarkaðinn og veita stóru olíurisunum aðhald í samkeppninni. Nú er komið að því að bjóða Akureyringum og nærsveitarmönnum  þennan valkost, þ.e ódýrasta eldsneytisverðið og engin afsláttarkjör.“

Viðskiptavinir Atlantsolíu fá áfram afslátt af eldsneyti með dælulykli á öllum öðrum stöðvum Atlantsolíu en í Kaplakrika, á Sprengisandi og Baldursnesi munu allir fá sama eldsneytisverðið, án afsláttar. Atlantsolía rekur 25 sjálfsafgreiðslustöðvar, átján á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og sjö á landsbyggðin.

 

Mynd: Bensínstöð Atlantsolíu við Glerártorg á Akureyri.