Bensínstöð breytt í öfluga hleðslustöð

Orkan hyggst hætta að selja bensín við Fellsmúla eftir rúm 50 ár og breyta bensínstöðinni í öfluga hleðslustöð fyrir rafknúin ökutæki í samstarfi við ON. Gert er ráð fyrir að stöðin hefji starfsemi fyrir lok árs 2023.

Rekin hefur verið bensínstöð á þessum stað í Fellsmúla allt frá árinu 1971 en það eru yfirvofandi orkuskipti og loftslagsstefna Reykjavíkurborgar, sem kveður á fækkun bensínstöðva, ásamt framtíðarstefnumörkun og vistvænum áherslum Orkunnar sem leiddu til þessarar ákvörðunar. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar, og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Orku náttúrunnar, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag.

Samstarf Orkunnar og Orku náttúrunnar hófst árið 2017. Í dag má finna hleðslustöðvar frá ON á átta Orkustöðvum, þrjár í Reykjavík og fimm á landsbyggðinni en stefnt er að fjölgun þeirra samhliða orkuskiptum bílaflotans.

„Sú mikla ánægja sem hefur verið með hleðslustöðvarnar á stöðvum Orkunnar er okkur hvatning til að halda áfram á þessari braut. Við vitum að rafbílum fjölgar nú hratt, þeir voru meira en helmingur seldra bíla á síðasta ári. Þetta þýðir að fjölga þarf hleðslustöðvum og Orkustöðvarnar eru vel staðsettar nærri stofnbrautum og því vinsælar hjá ökumönnum. Borgin hefur kynnt áherslur sínar um að fækka bensínstöðvum innan borgarmarkanna og sú stefna fer vel saman við okkar áætlanir um að vera lykilaðili í orkuskiptunum, í samvinnu við ON,“ sagði Vífill Inigmarsson  framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar af þessu tilefni.