Bílabúð Benna setur upp öflugustu bílahleðslustöð landsins

Bílabúð Benna hefur sett upp öflugustu bílahleðslustöð landsins við gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar að Krókhálsi 9. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, vígði helðslustöðina fyrir helgina.

Þessi nýja ofur hraðhleðslustöð sem hönnuð er af Porsche skilar allt að 350 kW og er mun öflugri en aðrar hraðhleðslustöðvar á landinu. Þær öflugustu hingað til eru 250 kW sem Tesla er að setja upp en sem dæmi má nefna að öflugustu hleðslustöðvar ON eru 150 kW. Með þessari nýju bílahleðslustöð verður hægt að hlaða rúmlega 100 kílómetra á aðeins 5 mínútum sem eru alger þáttaskil í hleðslutíma.

Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar Benna, segir að rafbílaeigendur geti komið á Krókháls 9 og hlaðið bíla sína og í leiðinni uppgötvað hversu auðvelt og fljótlegt það er að hlaða rafbíl í slíkri stöð. Nýja hleðslustöðin mun bæta til muna hleðsluhraða sem er í boði er og sýna þannig landsmönnum að framtíðin í rafbílaheiminum er nú þegar komin. Þessari stöð er ætlað að vera leiðarljós fyrir það að það sé raunverulegur möguleiki á því að skipta úr bensín eða dísel bíl yfir í rafbíl og að það sé hægt að nota bílinn að fullu á sama máta og eldri bíla.

Upplifunin rafbílaeigenda á að vera sambærileg við það að fara á bensinstöð og fylla á bílinn áður en haldið er út úr bænum og að ökumenn nái að hlaða nægilegum kílómetrum til þess að koma þér áleiðis hvert sem ferðinni er heitið. Það þarf engin að fyllast drægniskvíða lengur.

Mynd: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, vígði hleðslustöðina