Bíladagar á Akureyri

Bíladagar hefjast í dag ,fimmtudaginn 12. júní, og standa yfir til 17. júní þegar þeim lýkur með bílasýningu Bílaklúbbs Akureyrar í Boganum. Dagskráin er með hefðbundnum hætti þar sem keppt verður í ýmsum greinum, boðið upp á bílasýningar og fleira fyrir áhugafólk um bíla og akstursíþróttir. Helgin er ein af þeim stærri á árinu hjá lögreglunni á Akureyri.

Lykillinn að góðum Bíladögum fyrir alla sé gott samtal

Jóhannes Sigfúson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við akureyri.net að undirbúningur sé orðinn mjög góður fyrir helgina og lykillinn að góðum Bíladögum fyrir alla, sé gott samtal þeirra sem að dögunum koma.

„Við erum búin að fara í gegnum marga Bíladaga, og á hverju ári bætist í reynslubankann,“ segir Jóhannes við blaðamann Akureyri.net. „Við erum í mjög góðu samstarfi við Bílaklúbb Akureyrar, Akureyrarbæ, tjaldstæðin, Aflið, Slökkviliðið og aðra sem koma að Bíladögum.

Þung og stór helgi fyrir okkur og við bætum vel í mannskapinn

„Við hjá lögreglunni erum að draga lærdóm af Bíladögum fyrri ára, og miðum mönnun og viðbragð við það,“ segir Jóhannes. „Þetta er þung og stór helgi fyrir okkur og við bætum vel í mannskapinn. Það eru allt að 15 manns á vakt þegar mest er þessa helgi. Við fáum eiginlega bara alla sem vettlingi geta valdið upp á dekk. Þetta er líka löng helgi, hún hefst á fimmtudegi og lýkur í rauninni ekki fyrr en á þriðjudegi. Við erum með aukið umferðareftirlit þessa daga, og fáum liðsauka frá lögreglunni á Tröllaskaga, sem sinnir auknu hraðaksturseftirliti,“ segir Jóhannes Sigfússon, aðstoðaryfirlögregluþjónn, í samtali við akureyri.net

Dagsskrá Bíladaga 2025

Á sandspyrnunni munum við keyra líkt og í fyrra barnaflokkinn á undan tímatökum en mæting hjá þeim er um 17:10 (skráning á staðnum). Endilega að hvetja þessi skott áfram þau eru okkar arftakar. Og svo er bara svo gaman að sjá hvað þau eru einbeitt og dugleg að keyra í sandinum.

13. júní Sandspyrna Tímatökur byrja 18:45

14. júní Götuspyrna Tímatökur byrja 12:30

14. júní Bílalimbó (sama stað og í fyrra) keppni hefst kl. 21:00
Mæting 20:30 pittur lokar 21:00
Skráning á staðnum

15. júní Rallycross Keppni hefst 11:00

15. júní hávaðakeppni (sama stað og í fyrra) keppni hefst kl. 20:00
Mæting 19:00 pittur lokar 19:30
Skráning á staðnum16. júní Drift keppni Forkeppni hefst 11:45
16. júní Burn-out
Pittur opnar 19:30 og lokar 20:00
Skráning á staðnum.

17. júní Bílasýning í Boganum frá 10:00-18:00