Bílatryggingar hækka langt umfram verðlag

Töluverðar umræður hafa verið að undanförnu um miklar verðhækkanir sem hafa orðið á bílatryggingum síðustu ár. Í könnun sem Verðlagseftirlit ASÍ lét vinna hafa bílatryggingar hækkað um 24% á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,38% og er þetta því um 16,5% hækkun umfram almennar verðlagshækkanir.

Fram kemur í könnun Verðlagseftirlits ASÍ  að ýmsir ytri áhrifaþættir eru þó hagstæðir fyrir tryggingafélögin eins og miklar verðlækkanir á bílum (-13%) og varahlutum (-21%) auk þess sem umferðaslysum fer fækkandi. Þrátt fyrir þetta sjá tryggingafélögin ástæðu til að hækka verð á bílatryggingum en greiða á sama tíma út milljarða í arðgreiðslur.  

Að því fram kemur hefur styrking á gengi krónunnar leitt til þess að verð á bílum hefur lækkað um 13,28% og verð á varahlutum um 21,93% frá árinu 2014 en verð á bílum og varahlutum eru meðal þeirra þátta sem hafa áhrif á verð  bílatrygginga. Það vekur því athygli hversu hratt tryggingar hafa hækkað á undanförnum árum miðað við þróun þessara áhrifaþátta.

Fram kemur að hagnaður tryggingafélaganna hleypur á milljörðum á hverju ári sem og arðgreiðslur til hluthafa. Viðskiptavinir tryggingafélaganna fá ekki að njóta góðs af jákvæðri afkomu tryggingafélaganna heldur rennur jákvæð afkoma beint í vasa hluthafa á sama tíma og viðskiptavinir sjá verðin hækka ár hvert.

Verðlagseftirlitið hvetur neytendur til að vera vakandi yfir verðhækkunum tryggingafélaganna og leita tilboða í tryggingar sínar.

Nánar um könnun Verðlagseftirlits ASÍ má lesa hér.