Bílatryggingar VÍS hækka 1. ágúst

Vefrit Morgunblaðsins greinir frá því í dag að Vátryggingafélag Íslands, VÍS, hafi ákveðið að hækka iðgjöld bifreiðatrygginga frá og með 1. ágúst nk. Ábyrgðartrygging bifreiða, bifhjóla, fjórhjóla, vélsleða og dráttarvéla hækkar um 5%. Þá hækkar slysatrygging ökumanns og eiganda um 5% og kaskó- og brunatrygging um 6%.


Iðgjöld vegna framrúðutryggingar hækka mest, um 15%, en þess ber þó að geta að tryggingin bætir nú tjón á öllum rúðum ökutækis. Morgunblaðið segir að í Í tilkynningu frá VÍS komi fram að tjónakostnaður hafi aukist ár frá ári sem hlutfall af iðgjöldum og því hafi félagið þurft grípa til þess ráðs að hækka iðgjöld til þess að leiðrétta mismun á milli tjónakostnaðar og tekna af iðgjöldum.