Bílaumboðið Askja innkallar Mercedes Benz bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um innköllun á 86 bifreiðum af gerðinni Mercedes Benz CLA, GLA, A-Class og B-Class.

Ástæða innköllunarinnar er sú að möguleiki er fyrir því að vacuum slanga frá bremsukút losni frá, valdandi þess að bremsu pedall verður mjög harður.

Askja ehf mun senda viðeigandi bifreiðaeigendum bréf.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við Bílaumboðið Öskju ehf ef þeir eru í vafa.