Bill Gates dælir peningum í etanóleldsneyti

http://www.fib.is/myndir/Bill-gates.jpg
Bill Gates hefur eignast rúman fjórðungshlut í fyrirtæki í Kaliforníu sem framleiðir metanóleldsneyti á bíla úr stönglum og blöðum maísplantna af maísökrum.

Hlutabréf í fyrirtækinu, sem heitir Pacific Ethanol, hækkuðu við kaup Microsoft-kóngsins og er hlutur hans í fyrirtækinu nú um 100 milljón dollara virði. Pacific Ethanol er nú að reisa etanólframleiðslustöð í Kaliforníu.

Talsmaður fjárfestingafélags Bill Gates segir við CNN að kaupin á hlutnum hafi einungis verið hugsuð sem fjárfestingarkostur en vel komi til greina að fjárfesta enn frekar í fyrirtækinu og öðrum fyrirtækjum af sama tagi.