BL ehf. innkallar 144 Nissan Micra

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf.  um að innkalla þurfi 144 Nissan Micra bifreiðar af árgerð 2016 - 2017. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúðabelgir farþegamegin virki ekki sem skyldi.

Viðgerð felst í því að skipt verður um loftpúða. Viðkomandi bifreiðaeigendum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.