BL ehf. Innkallar Subaru Legacy og Outback

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi Subaru Legacy og Outback bifreiðar af árgerðunum 2018.  Um er að ræða 37 bifreiðar. 

Ástæða innköllunarinnar er möguleg forritunarvilla í bensínmæli og hugbúnaði í mælaborði. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.