BL innkallar 137 Subaru bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  að innkalla þurfi  Subaru Legacy og Subaru Outback bifreiðar af árgerðunum 2010 til 2014. Um er að ræða 137 bifreiðar.

Ástæða innköllunarinnar er að  þéttir og segulhringur í stjórnborði rafmagnshandbremsu getur skemmst við eðlilega notkun bifreiðar.

Viðgerð felst í því að skipta um stjórnbox fyrir rafmagnshandbremsu. Aðgerðin er eigendum að kostnaðarlausu. Eigendum þessara bifreiða verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.