BL innkallar 160 Discovery bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 160 Land Rover Discovery af árgerð 2017-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að Þegar afturhurðum er lokað er hætta á að þær lokist ekki tryggilega.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.