BL innkallar Hyundai bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL Hyundai ehf um að innkalla þurfi 16 Hyundai OS PE, OS PE HEV/EV, TM PE, PE HEV/PHEV, BC3, NX4e bifreiðar af árgerð 2020.

Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hugbúnaðarvilla valdi því að skráningarnúmer bílsins sé ekki sent til neyðarþjónustu ef loftpúði spryngur út. Viðgerð felst í hugbúnaðaruppfærslu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis eða símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.