BL innkallar Isuzu og Qashqai

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi Isuzu D-Max bifreiðar af árgerð 2018.  Um er að ræða 17 bifreiðar.  Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að fjaðrablöð af aftan brotni við festingar. 

Þá hefur Neytendastofu ennfremur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi  Nissan Qashqai bifreiðar af árgerð 2018. Alls er um að ræða 10 bifreiðar.  Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að þéttir fyrir stýringu kæliviftu getur bilað. Viðgerð felst í því að skipt verður um kæliviftu umræddra bifreiða.  

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.