BL kynnir nýjan Discovery sem er hæfari og öflugri en nokkru sinni fyrr

BL kynnir á morgun, laugardag milli kl. 12 og 16 nýjan Discovery sem er hæfari og öflugri en nokkru sinni fyrr. Nýr Discovery er nú í fyrsta sinn með yfirbyggingu úr áli sem gerir hann 490 kg léttari en eldri gerð.

Hæfni við erfiðar aðstæður hefur verið aukin með endurbættu Terrain Response drifkerfi og loftpúðafjöðrun sem gerir ökumanni kleyft að hækka bílinn upp og ná allt að 28,3 cm veghæð og 90 cm vaðhæð sem er alger sérstaða í þessum flokki bíla.

Nýr Disvovery er einn öflugasti og glæsilegasti jeppinn frá Land Rover til þessa og jafnframt búinn meiri búnaði og þægindum en fyrri kynslóð. Sumir segja að á því sviði sé hann farinn að standa nokkuð upp í hárinu á Range Rover.

Ytra útlit Discovery er í samræmi við nýja kynslóð Land Rover bíla sem einkennast að ávölum en ögrandi línum. Í Discovery er komin ný þriggja lítra SDV6 dísilvél sem er bæði öflugri og sparneytnari en fyrri vél sem eyðir frá aðeins 7,2 lítrum á hundraði í blönduðum akstri.

Hátt og lágt drif er staðalbúnaður í SDV4 og TDV6 gerðunum. Auk ríkulegs staðalbúnaðar er hægt að fá sæti fyrir 7 manns. Innréttingin í nýjum Discovery er endurhönnuð frá grunni og í algerum sérflokki hvað varðar útlit og áferð.

Nýr Discovery kostar frá 9.190 þúsundum króna sem er afar hagstætt miðað við stærð og búnað bílsins. Í þeirri útfærslu er Discovery sjálfskiptur með 2,0 lítra Td4 180 hestafla Ingenium-dísilvél með um 10 sekúndna hröðun í 100/km klst.

Dýrasta útgáfa af Discovery HSE Luxury með 3ja lítra 258 hestafla dísilvél kostar 13.590 þúsundir króna. Allar gerðir Disvovery eru búnar mjög miklum staðal- og þægindabúnaði.