Brimborg innkallar 155 Ford bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi Ford bifreiðar af árgerðunum 2016 til 2018.  Um er að ræða 155 bifreiðar af gerðunum Kuga, Focus, C-MAX, S-MAX, Mondeo, Galacy og Transit Connect.

Ástæða innköllunarinnar er að nauðsynlegt er að uppfæra hugbúnað beinskiptra bensín bifreiða með ecoboostvélar til að koma i veg fyrir að sprungur geti myndast í kúplingspressu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.