Brimborg innkallar Ford Mustang og Ford GT

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi Ford Mustang og Ford GT bifreiðar af árgerðunum 2005 til 2014.  Um er að ræða 44 bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir.

Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.