Brot 181 ökumanna mynduð á Suðurlandsvegi og á Miklubraut

Brot 56 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi sl. þriðjudag Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 571 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 128.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Þá voru brot 125 ökumanna mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 10. júní til mánudagsins 16. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á sex sólarhringum fóru 26.945 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.