Brot 192 ökumanna voru mynduð á Sæbraut

Brot 192 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 28. apríl til föstudagsins 2. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg.

Á fjórum sólarhringum fóru 24.799 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 142. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Brot 36 ökumanna voru mynduð í Skeiðarvogi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skeiðarvog í norðurátt, að Karfavogi.

Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 124 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65

Vöktun lögreglunnar í Skeiðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.