Brýnt að tímaáætlun Reykjavíkurborgar standist

„Fólk er sífellt stoppandi og takandi af stað og það er þegar ökutæki gefa frá sér mest af mengandi efnum,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, um mengun á framkvæmdasvæðinu við Miklubraut í samtali við Morgunblaðið um helgina.

Runólfur gagnrýnir Reykjavíkurborg og segir að hefði vilji verið fyrir hendi hefði verið mjög einfalt að halda umferð í eðlilegu horfi. „Mér finnst þetta vera hálfgerð leti og uppgjöf af hálfu Reykjavíkurborgar.“

Hann segir mjög brýnt að tímaáætlun Reykjavíkurborgar vegna framkvæmdanna standist.

„Við höfum nú ekki góða reynslu af tímaáætlunum borgarinnar en það er mjög mikilvægt að hún standi í þetta sinn,“ segir Runólfur m.a. í samtalinu við Morgunblaðið.