Búnaður til útvarpssendinga tekinn í notkun í Bolungarvíkurgöngum

Í dag, föstudaginn 15. desember, var formlega tekinn í notkun búnaður til útsendinga útvarps í Bolungarvíkurgöngum. Fram til þessa hafa engar útvarpsútsendingar náðst í veggöngum hérlendis, öðrum en Hvalfjarðargöngum og nú hinum nýju Norðfjarðargöngum.

Það var orðið  tímabært að bæta þar úr, en Bolungarvíkurgöng hafa til þess verið næstfjölförnustu veggöng hérlendis á eftir Hvalfjarðargöngum.

Það er Samgöngufélagið sem stendur að þessari framkvæmd, en Leið ehf. ásamt fleiri aðilum annast fjármögnun. Búnaðurinn ásamt uppsetningu kostar um 8,5 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að með þessum nýja búnaði verði unnt að ná útsendingum Rásar 1, Rásar 2 og Bylgjunnar en mögulega má fjölga rásum með tiltölulega litlum tilkostnaði. Þá er búnaðurinn búinn svokölluðu yfirkalli þannig að komast má með tilkynningar inn í allar útsendingar útvarps í göngunum ef vá ber að dyrum.