Dýrafjarðargöng tekin í notkun

Dýrafjarðargöng voru opnuð fyrir umferð i gær. Opnunin var með óvenjulegu hætti vegna Covid-19 og hringdi Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra. úr Vegagerðinni í Reykjavík vestur á Ísafjörð í vaktstöð Vegagerðarinnar. Þar lyftu menn síðan slánum upp frá báðum gangamunnum. Við munnana beið mikill fjöldi Vestfirðinga í löngu bílaröðum til að fá að komast í gegn og geta þannig fagnað þessari miklu samgöngubót sem göngin eru.

Þessari óvenjulegu athöfn var streymt frá Reykjavík en einnig var streymt myndum að vestan sem tengdust streyminu frá Reykjavík. Öllu tali var einnig útvarpað á FM í og við göngin þannig að þeir sem biðu í bílum sínum gátu hlustað á ávörp ráðherra og vegamálastjóra. Hægt er nálgast streymið hér https://livestream.com/accounts/5108236/events/9367337 frá athöfninni.

Ræðumenn óskuðu Vestfirðingum til hamingju með göngin sem og landsmönnum öllum.

Þess var gætt að fylgja öllum sóttvarnarreglum þannig að ekki kæmu fleiri saman en 20 og tveggja metra fjarlægð haldið þar sem það var hægt en grímur notaðar annars fyrir utan almenna sprittnotkun.