Eftirlit um verslunarmannahelgina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með töluvert eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áherslan í sumar hefur m.a. verið á eftirlit með hraðakstri, notkun farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar, ferðavögnum/eftirvögnum og hættulegum framúrakstri.

Á vefsíðu lögreglunnar kemur fram að það sé ánægjulegt að sjaldnast hefur verið ástæða fyrir lögreglu til að kæra fyrir vanbúnað eftirvagna/ferðavagna, en í nokkrum tilvikum hefur ökumönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga, t.d. að framlengja hliðarspegla þegar ökutæki draga breiða eftirvagna.

Því miður eru líka alltaf einhverjir sem leyfa sér að virða ekki reglur um hámarkshraða, auk þess að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur en ekki þarf að fjölyrða um þá hættu sem það skapar í umferðinni. Flestar aðfinnslur gátu ökumenn lagað á vettvangi eða ábendingarnar fóru með ferðalöngunum sem gott veganesti. Í flestum tilvikum virðast ferðalangar því huga vel að ástandi ferðavagna/ökutækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt.

Ekki má heldur gleyma mikilvægi þess að þeir sem eru með ferðavagna/eftirvagna í eftirdragi virði reglur um hámarkshraða, en á þjóðvegi þar sem leyfður er 90 km hámarkshraði má ekki draga eftirvagna hraðar en á 80 km/klst.

Auk aksturs á löglegum hraða er líka nauðsynlegt að ökumenn og farþegar spenni beltin og að sjálfsögðu eiga allir ökumenn að vera allsgáðir. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur alla vegfarendur til þess að sýna þolinmæði, sem er ómissandi í umferðinni, og gæta skal sérstakrar varúðar við framúrakstur.