Einn tankur á ári!

http://www.fib.is/myndir/Kolvi%F0ur.jpg

Umhverfisverkefninu Kolviði var formlega hleypt af stokkunum í Þjóðminjasafninu sl. mánudag. Markmið Kolviðar er aðhvetja Íslendinga til þess að hafa frumkvæði að því að þjóðin verðu sú fyrsta í heiminum til að kolefnisjafna útblástur samgöngutækja sinna með skógrækt. Bakhjarlar Kolviðar eru ríkisstjórn Íslands, Kaupþing og Orkuveita Reykjavíkur.

Hugmyndin að stofnun Kolviðar kom upphaflega frá Hljómsveitinni Fræbblarnir sem árið 2003 héldu minningartónleika um Joe Strummer söngvara hljómsveitarinnar Clash. Strummer var þekktur fyrir áhuga á loftslagsmálum. Tónleikar Fræbblanna voru haldnir í samvinnu við Landvernd og Skógræktarfélag Íslands og ágóði af þeim rann til Kolviðar. Ríkisstjórnin gerði síðan aðstandendum verkefnisins kleift að stofna sjóðinn formlega.

Guðfinna S. Bjarnadóttir er formaður stjórnar Kolviðar. „Margir telja hlýnun í lofthjúpi jarðar vegna gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu, mestu umhverfisógn sem þjóðir heims standa nú frammi fyrir. Sum ríki áforma að setja á skatta til að fjármagna mótvægisaðgerðir. Við hjá Kolviði viljum fara aðra leið. Við viljum bjóða landsmönnum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, að taka þátt í verkefninu og axla þannig sjálfir ábyrgð á kolefnislosun sinni,” segir Guðfinna.

Vefsíða Kolviðar er www.kolvidur.is, en hún verður kynnt og opnuð almenningi þann 15. maí 2007. Þar geta einstaklingar reiknað út losun koldíoxíðs vegna eigin samgangna og jafnframt greitt fyrir þau tré sem þarf til að „kolefnisjafna” sig. Þumalfingursregla er að árlega þurfi að gróðursetja tré fyrir sem svarar andvirði einnar áfyllingar á eldsneytistank bifreiðar – einn tankur á ári!

Hugmyndafræði Kolviðar byggir á skógrækt, alþjóðlega viðurkenndri aðferð til að sporna gegn áhrifum koldíoxíðsútblásturs. Hlýnun andrúmsloftsins er að stórum hluta rakin til losunar koldíoxíðs (CO2). Tré vinna koldíoxíð úr andrúmsloftinu. Þau binda (C) og leysa súrefni (O2) út í andrúmsloftið. Fyrsta skógræktarland Kolviðar verður Geitasandur á Suðurlandi. Starfsemi Kolviðar verður vottuð af KPMG endurskoðun.

Soffía Waag Árnadóttir er framkvæmdastjóri Kolviðar. „Við finnum fyrir miklum áhuga meðal einstaklinga jafnt sem fyrirtækja á þessu verkefni Kolviðar. Með opnun vefsíðunnar þann 15. maí nk. bjóðum við öllum landsmönnum að taka þátt í þessu spennandi verkefni,“ segir Soffía.
http://www.fib.is/myndir/Kolvidarstjorn.jpg
Stjórn Kolviðar. Fremri röð: Björgólfur Thorsteinsson formaður Landverndar, Guðvinna S. Bjarnadóttir stjórnarformaður, Magnús Jóhannesson formaður Skógræktarfélags Íslands. Aftari röð: Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar, Soffía Waag Árnadóttir framkvæmdastjóri Kolviðar og Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands.