Einstök og sérmerkt útgáfa á einum Mini Hatch

Framleiðendur MINI bílana fögnuðu brúðkaupi Harrys Bretaprins og Megan um síðustu helgi með einstakri og sérmerktri útgáfu á einum Mini Hatch. Það var sérstaklega tekið fram að ekki var um gjöf til brúðhjónanna að ræða heldur til velferðarsjóðs sem brúðhjónin tilnefndu. Brúðhjónin völdu velferðarsjóð sem starfar í þágu HIV-smitaðra barna, The Children’s HIV Association (CHIVA).

Sjóðurinn mun setja þennan einstaka bíl á almennt uppboð og nýta söluandvirðið til góðgerðarmála í þágu skjólstæðinga sinna. „Mini er eitt höfuðdjásna í sögu breskrar bílaframleiðslu og það er okkur sönn ánægja að minnast sögunnar og heiðra brúðhjónin um leið með þessum hætti,“ sagði Oliver Heilmer, yfirhönnuður Mini, þegar tikynnt var um gjöfina.

Eins og áður segir mun góðgerðarsjóðurinn fá bílinn afhentan og bjóða hann upp að loknu brúðkaupi. Sá eða sú sem hæst býður eignast einstakan Mini, þann eina í heiminum. Fastlega má búast við að þessi „One of a Kind“ eins og Bretarnir segja, auki verðmæti sitt eftir því sem árin líða í anda einstakra safngripa sem gjarnan hækka í verði eftir því sem árin líða.