Ekki lengur fastir vikulegir verðákvörðunarfundir

http://www.fib.is/myndir/Talsma(eth)urneyt.jpg
Frétt frá talsmanni neytenda:


Embætti talsmanns neytenda hefur beint þeim tilmælum til Olíufélagsins ehf. sem smásöluaðila á bifreiðaeldsneyti á neytendamarkaði að viðhafa ekki fasta vikulega fundi um ákvörðun eldsneytisverðs til handa neytendum. Félagið hefur þegar fallist á tilmælin.

Önnur olíufélög ásamt Samkeppniseftirlitinu voru upplýst um málið.