Eldur kviknaði í bíl á Gylfaflöt

Bifreið er gerónýt eftir að eldur kom upp í henni við bensínstöð Orkunnar við Gylfaflöt í Grafarvogi sl. föstudag. Atvikið átti sér stað á fimmta tímanum og lokaði lögreglan svæðinu þarna í kring. Engin slys urðu á fólki.

Vel gekk að slökkva eldinn en ekki er ljóst að stöddu hvers vegna eld­ur­inn kviknaði. Unnið er að rannsókn málsins.