Endurgreiðsla nái til viðgerða á öllum skráningarskyldum ökutækjum

Samiðn, Samband iðnfélaga, vill láta endurgreiða viðgerðir á bifhjólum, hjólhýsum og tjaldvögnum auk bifreiða og annarra skráningarskyldra ökutækja.
Með lögum nr. 25/2020, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, var m.a. sú tímabundna breyting gerð að virðisaukaskattur vegna vinnu manna við bílaviðgerðir, bílamálun og bílaréttingar fólksbifreiða yrði að öllu leyti endurgreiddur.

Samiðn, Samband iðnfélaga, hefur bent fjármála- og efnahagsráðuneytinu á mikilvægi þess að endurgreiðsla vegna þessarar vinnu verði útvíkkuð með þeim hætti að slíkar endurgreiðslu taki til viðgerða, málningar eða réttinga á öllum skráningarskyldum ökutækjum, sbr. umferðarlög nr. 77/2019 og reglugerð nr. 751/2003, um skráningu ökutækja, með síðari breytingum.

Samiðn bendir á að ekki yrði séð að nein rök séu fyrir því að undanskilja önnur skráningarskyld ökutæki frá umræddri endurgreiðslu á virðisaukaskatti svo sem bifhjól, hjólhýsi, tjaldvagn eða dráttarvél. Samiðn telur afar brýnt að umræddar breytingar verði gerðar hið fyrsta.

,,Það er mikilvægt að umrædd endurgreiðsla verði víkkuð út með þeim hætti að hún taki til allra skráningarskyldra ökutækja enda eru engin rök fyrir að undanskilja bifhjól, hjólhýsi, tjaldvagna eða önnur skráningarskyld ökutækja í þessu sambandi," segir Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.