Tekjur Vaðlaheiðarganga 25% minni en búist var við

Gjaldtaka í Vaðlaheiðargöng hófst fyrir rösku ári síðan en um 75% af þeim sem aka um Vaðlaheiði fara í gegnum Vaðlaheiðargöng. Framkvæmdastjóri ganganna segir tekjur eftir fyrsta árið séu að minnsta kosti 25% minni en búist var við. Þetta kemur fram á ruv.is.

Fram kemur í umfjölluninni hjá ruv.is að sumar fjölskyldur í Þingeyjarsveit hafa sumar borgað um og yfir milljón fyrir ferðir í gegnum Vaðlaheiðargöng. Tæpt ár er frá því gjaldtaka í göngin hófst. Stórnotendur kalla eftir breyttri verðskrá. Ekki sé sanngjarnt að þeir sem noti göngin daglega þurfi að borga sama gjald og aðrir.

Margir íbúar Þingeyjarsveitar sækja þjónustu, vinnu eða nám til Akureyrar. Rúnar Ísleifsson, skógarvörður, býr í Fnjóskadal. Hann hefur keypt um 1000 ferðir í göngin á árinu en börn hans sækja tómstundir og nám í Eyjafjörð. Þær ferðir kostuðu um sjö hundruð þúsund krónur.

Hann segist fagna göngunum og það sé sjálfsagt mál að borga í þau, gjöldin séu hins vegar alltof há, sérstaklega fyrir þá sem noti þau mikið. Hann telur ekki sanngjarnt að þeir sem noti göngin á hverjum degi þurfi að greiða sama verð og aðrir. Hann vill að tekið verði upp mánaðargjald eða að hægt verði að kaupa fleiri ferðir í einu. 

Rúnar segir eina af forsendum þess að göngin voru byggð að gera átti svæðið að einu atvinnu- og þjónustusvæði. Það gangi hins vegar ekki þegar gjaldið sé jafn hátt og raun ber vitni.

Fram kemur í viðtali við Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóra Vaðlaheiðargangaað í skoðun að koma til móts við þá sem noti göngin daglega; „Við höfum verið að skoða svona fyrirmynd sem er í Færeyjum sem er mánaðargjald. Þá er fast gjald á bíl og hægt að keyra eins mikið og þeir vilja þannig því meira sem þeir keyra því ódýrara. Það er í skoðun og líklega verður tekin ákvörðun um það á næstu mánuðum“.

Umfjöllun RUV má nálgast hér.