Ferðin í Vaðlaheiðargöng kostar 1500 krónur

Stefnt er að formlegri opnun Vaðlaheiðarganga 12. janúar næstkomandi. Svo gæti farið að hægt væri að opna göngin í lok þessa mánaðar en það ræðst að því hvernig til tekst með lokafrágang ganganna. Vegggjöld verða innheimt rafrænt en ekki í gjaldskýli.

Upphaflega stóð til að opna Vaðlaheiðargöng á síðari hluta ársins 2016 en ýmsar tafir á framkvæmdatímanum urðu þess valdandi að ekki var hægt að opna göngin fyrr en nú. Gerð ganganna hefur sætt mikilli gangrýni sökum þess hve langt hún fram úr upphaflegri áætlun.

Fyrirkomulag gjaldtökunnar og opnun ganganna var kynnt á blaðamannafundi í morgun. Gjaldtakan verður með þrenns konar hætti.

Í fyrsta lagi í gegnum aðganga á veggjald.is. Stofnaður er aðgangur og þar settar inn greiðslukortaupplýsingar og þau bílnúmer sem óskað er eftir að greiða fyrir. Við hverja ferð í gegnum göngin skuldfærist veggjaldið á viðkomandi greiðslukort. Hægt er að kaupa fyrirframgreiddar 10, 40 eða 100 ferðir á afsláttarkjörum. Því fleiri ferðir sem keyptar eru þeim mun lægri upphæð greiðist fyrir hverja ferð.

Stök ferð fólkbíls um göngin mun kosta 1500 krónur. 10 ferðir kosta 12.500 krónur eða 1250 krónur ferðin. 40 ferðir kosta 36.000 krónur eða 900 krónur ferðin. 100 ferðir kosta 70.000 krónur eða 700 krónur ferðin.

Í öðru lagi er hægt að kaupa stakar ferðir á veggjald.is eða tunnel.is eða með appi allt að þremur tímum áður eða eftir að ekið er í gegnum göngin.

Í þriðja lagi, ef ferð er ekki greidd innan þriggja tíma frá því að ekið er í gegnum göngin verður veggjaldið innheimt af skráðum umráðamanni ökutækis að viðbættu þúsund króna álagi.