FIA vill áratug aðgerða gegn umferðarslysum

 

Nú stendur yfir í Moskvu fyrsti alheimsfundur samgönguráðherra. Jean Todt nýkjörinn forseti FIA,- heimssamtaka bifreiðaeigendafélaga og bílaíþróttafélaga ávarpaði fundinn í morgun og sagði að ef ekkert yrði að gert myndu fimm milljón mannslíf glatast í heiminum næsta áratuginn og fimmtíu milljónir myndu slasast alvarlega og búa við varanlegt líkamstjón upp frá því. „Við vitum hvað gera þarf til að þessi líf glatist ekki. Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við þessu og tjá pólitískan vilja sinn til að ná árangri og láta þennan fund marka tímamót í umferðaröryggismálum alls heimsins,“ sagði Jean Todt í ávarpi sínu.

Steinþór Jónsson, Ólafur Kr. Guðmundsson,

Michelle Yeoh og Jean Todt forseti FIA.

 Ráðherrafundurinn í Moskvu er tilkominn vegna frumkvæðis FIA og Sameinuðu þjóðanna. Honum er ætlað að vekja ríkisstjórnir og stjórnmálamenn um heim allan tll vitundar um umferðarslysavána og samþykkja áætlun fyrir næsta áratuginn um slysavarnir sem duga til að fimm milljónir mannslífa bjargist á næstu tíu árum á vegum heimsins.

Umferðarslys eru vaxandi faraldur og ef fram fer sem horfir verða umferðarslys orðin helsta dánarorsök 5-14 ára barna í heiminum um 2015. Af þeirri ástæðu hafa FIA og aðildarfélög samtakanna um allan heim sameinast í átakinu Make Roads Safe. Í átakinu felst ákall til ríkisstjórna og valdhafa heimsins að grípa strax til aðgerða til að draga um helming úr þeim dauðaslysum sem spár gera ráð fyrir að verði árið 2020.

Allar mannfjöldaspár gera ráð fyrir því að þegar árið 2020 rennur upp þá verði svo komið að 1,9 milljón manns farast í umferð í heiminum. Markmið tíu ára áætlunarinnar Decade of Action er hins vegar það að færri en ein milljón mannslíf glatist í þessum slysum. Á ráðherrafundinum í Moskvu er fjallað um tíu ára áætlunina. Í henni er skilgreint í tíu liðum hvað gera þurfi til að ná þessum markmiðum. Það á m.a. að gerast með því að sameina stjórnmálaöfl, almenningsálit og kalla fram virkan stuðning almennings. Jafnframt verði séð til þess að vegakerfi og umferðarmannvirki verði framvegis hönnuð með lífsvernd vegfarenda í huga

Nú þegar farast ámóta margir í umferðarslysum og láta lífið af völdum malaríu og berkla. Allar spár gera ráð fyrir því að dauðsföllum í umferðinni muni fjölga mjög á næstu árum verði ekki gripið til róttækra aðgerða þegar í stað.  Í hnotskurn er staðan nú þessi:

•    Árið 2030 gera spár ráð fyrir því að um það bil helmingi fleiri farist í umferðarslysum í heiminum en í dag.

•    Um það bil 1.3 milljónir manns munu týna lífi á vegum heimsins á þessu ári. Yfir 90 prósent þessara dauðaslysa verða í fátækustu löndum heimsins.

•    Umferðarslys eru algengasta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 15-19 ára í þróunarlöndunum og önnur algengasta dánarorsök 5-14 ára barna.

Fulltrúar frá íslenskum stjórnvöldum sitja fundinn í Moskvu en auk ráðherra- og embættismanna þjóðríkja sitja fundinn einnig fulltrúar frá FIA. Á meðal þeirra síðarnefndu eru tveir Íslendingar, þeir Steinþór Jónsson formaður FÍB og Ólafur Kr. Guðmundsson varaformaður.