FIB Aðstoð um allt landið

Líkt og undanfarið 61 ár verður FÍB með þjónustuvakt um verslunarmannahelgina fyrir bíleigendur. Hjálparþjónusta FÍB miðast við að aðstoða bíleigendur á ferðalagi sem þurfa á þjónustu bílaverkstæðis að halda eða vantar varahlut. FÍB aðstoðarbílar verða á fjölförnustu leiðum og umboðsmenn félagsins um land allt eru í viðbragðsstöðu.

FÍB hefur, eins og undangengnar verslunarmannahelgar, kallað út liðsauka aðstoðarbíla sem verða á vegum landsins, félagsmönnum og vegfarendum til halds og trausts.BL hefur góðfúslega lánað félaginu nýlega bíla en þessir auka-liðsmenn FÍB-Aðstoðar verða á þeim um verslunarmannahelgina og kann félagið fyrirtækinu bestu þakkir fyrir velvild þess í garð bifreiðaeigenda yfir mestu ferðahelgi ársins.



Víða um land verða verkstæði opin vegna neyðarþjónustu og bílaumboð og stærri varahlutasalar hafa góðfúslega skipulagt bakvaktir vegna varahlutaafgreiðslu fyrir milligöngu FÍB.

Skrifstofa FÍB, sími 414-9999, hefur milligöngu varðandi aðstoðarbeiðnir um verslunarmannahelgina og þar verður vakt frá föstudegi til síðdegis á mánudag. 
Þegar ekki er vakt á skrifstofunni svarar FÍB AÐSTOÐ í síma 5-112-112. 
FÍB óskar öllum vegfarendum góðrar ferðar um verslunarmannahelgina og ráðleggur bíleigendum að yfirfara bíla sína áður en lagt er upp í langferð. Sjá nánar hér.

Eftir einn ei aki neinn

Loks má minna á um þessa miklu ferða- og skemmtanahelgi að fólk gæti sín á því að snerta ekki bílinn eftir að búið er að fá sér í tána. Þótt það sé margtuggin tugga að akstur og áfengi fari ekki saman þá er hún í fullu gildi engu að síður.

Nokkrar meginreglur

1.  Allir í bílbelti
2.  Loftþrýstingur í dekkjum og góð dekk.

3.  Hlaða bílinn rétt.  Þungir hlutir neðst.

4.  Blæðingar á vegum víða um land.

5.  Yfirborðsmerkingar horfnar.  Sérstaklega huga að miðlínum og hvar 
þær eru (voru) heilar og því bannað að taka framúr.

6.  Lausaganga búfjár við vegi.  T.d. Vestfirðir...