FÍB bílhreinsunartilboð

Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn fyrir veturinn og einmitt núna er í gildi sérstaklega gott tilboð á bílaþrifum til FÍB félaga. Það er frá fyrirtækinu AÞ-þrifum ehf sem er með starfsstöðvar að Borgartúni 21b í Reykjavík og Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Megininnihald tilboðsins frá AÞ-þrifum félst í því að félagsmenn FÍB fá 30 prósenta afslátt af þjónustu fyrirtækisins.

Venjulegt verð á alþrifum á litlum fólksbíl bæði að utan og innan ásamt bóni er kr. 6.500 en FÍB verðið er einungis kr. 4.550. Á sama hátt kostar sama aðgerð á litlum jeppa eða jepplingi kr. 9.500 en FÍB verðið er aðeins kr. 6.650. http://www.fib.is/myndir/Car-cleaning-2.jpg

 Nú er haustið gengið í garð og vetur framundan. Einmitt nú er því rétti tíminn til að búa bílinn undir veturinn, þrífa hann yst sem innst og bóna hann rækilega til þess að verja hann gegn saltpækli og tjöru af götunum. Með því að hirða vel um heimilisbílinn og halda honum hreinum og bónuðum endist hann betur, ryðgar miklu síður og heldur betur verðgildi sínu þegar að því kemur að skipta honum út.

Tilboðið frá AÞ-þrifum ehf gildir frá 15.september til 15.október 2009. Hægt er að panta tíma fyrir heimilisbílinn í síma 553 3333