FÍB sakar Fjármálaeftirlitið um vanrækslu

 

FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, hefur sent Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra áskorun um að grípa tafarlaust til aðgerða til að stöðva yfirvofandi gripdeildir tryggingafélaga úr sjóðum sem eru í eigu viðskiptavina þeirra.

Þrjú tryggingafélög hafa kynnt fyrirætlanir um samtals 8,5 milljarða króna arðgreiðslur á næstu dögum. Fjármunina á að taka úr bótasjóðum sem tryggingafélögin hafa safnað með uppsprengdum iðgjöldum af ofáætluðum tjónum.

Fjármálaeftirlitið hefur lagt blessun sína yfir það að eigendur tryggingafélaganna tæmi bótasjóðina og stingi þeim í eigin vasa. FÍB hvetur ráðherra til að taka í taumana með því að gefa stjórn Fjármála­eftirlitsins fyrirmæli um að sinna lögbundnu eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu. FÍB segir að FME vanræki skyldur sínar við almenning og hugsi eingöngu um hag fjármálafyrirtækja og fjárfesta. Því verði að breyta.

FÍB bendir á að FME hafi ríkar heimildir til að hlutast til um fjármál og rekstur tryggingafélaganna. FME geti skipað þeim að endurgreiða tryggingatökum eign þeirra í bótasjóðunum eða nota fjármunina til að lækka iðgjöld næstu árin.

FÍB bendir jafnframt á að ef FME ætlar að láta þessa sjálftöku afskiptalausa, þá yrði það í annað sinn á einum áratug sem stofnunin horfir aðgerðalaus á eigendur tryggingafélaga tæma bótasjóði sem þeir eiga ekki.

Áskorun til fjármálaráðherra