FÍB Aðstoð þjónustar vegaaðstoð Toyota, Lexus og BNB

Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB og Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi handsala …
Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB og Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi handsala samstarfssamninginn fyrir utan höfuðstöðvar Toyota í Kauptúni í Garðabæ.

Frá og með 1. júlí mun Toyota á Íslandi bjóða viðskiptavinum Toyota, Lexus og Betri notaðra Bíla vegaaðstoð í 12 mánuði.

Toyota á Íslandi og Félag íslenskra bifreiðaeigenda hafa undirritað samstarfssamning. Samningurinn felur í sér að umráðamenn nýrra Toyota og Lexus bíla sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi og keyptir frá og með í dag hafa aðgang að vegaþjónustu. Sama á við um notaða bíla sem seldir eru undir vörumerkjum Betri notaðra bíla (BNB) og KINTO bílaleigubíla.

Vegaaðstoðin felur meðal annars í sér:

· Aðstoð ef bíll verður straum- eða bensínlaus
· Aðstoð við dekkjaskipti ef dekk springur
· Flutning á verkstæði ef bíll bilar
· Flutning rafmagnsbíls heim eða á næstu hleðslustöð ef rafmagnið klárast
Nánari upplýsingar um FÍB Aðstoð.

Til viðbótar fylgir félagsaðild að FÍB í 12 mánuði fyrir umráðamann bifreiðar, honum að kostnaðarlausu. Nánar um þjónustuframboð FÍB.

“FÍB fagnar samstarfi við Toyota á Íslandi sem hefur verið leiðandi fyrirtæki í bílgreininni í áraraðir. Félagar í FÍB eru nú um 19.000 og samstarfið við Toyota mun efla og styrkja félagið til að uppfylla kröfur vegfarenda um þjónustu og öryggi. Tilgangur FÍB er að efla umferðaröryggi, umferðarmenningu og gæta hagsmuna bíleigenda. ” segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.

“Okkur þykir mikill fengur að þessu samstarfi við FÍB sem við sjáum sem enn eina viðbótina við öfluga þjónustu við viðskiptavini okkar. Við viljum ekki aðeins selja góða vöru heldur viljum við einnig að viðskiptavinurinn eigi greiðan aðgang að góðri þjónustu. Samstarfið við FÍB gerir okkur kleift að ganga enn lengra í þá átt” segir Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi.