Fimm tilboð bárust í Arnarnesveg

Tilboð voru opnuð í framkvæmdir við Arnarnesveg í vikunni. Lægsta boð hljóðaði upp á um 5,4 milljarða króna og var því um 720 milljónum lægra en áætlun gerði ráð fyrir sem var 6,2 milljarðar.

Verkið felst í gerð lokaáfanga Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi.

Einnig verða gerð tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi umferð, stofnstígar og stígatengingar. Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna. Vegagerðin, Reykjavíkurborg, Betri samgöngur, Kópavogsbær, Veitur og Míla standa saman að verkinu.

Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.