Fjögur þúsundasti rafbíllinn frá BL afhentur

Í árslok var fjögur þúsundasti rafbíllinn frá BL afhentur frá því að fyrirtækið hóf sölu þeirra 2013 þegar Aron Knútsson sölumaður afhenti Rui Luís Sequeira Gomes Silva á gamlársdag nýan og glæsilegan Renault Megane E-Tech.

Mikill vöxtur var í sölu BL á nýliðnu ári þegar nýskráðir voru 40,9% fleiri nýir fólks- og sendibílar borið saman við fyrra ár og var Hyundai þriðja mest selda fólksbílategundin á landinu.

Alls voru 1.218 hreinir rafbílar frá BL nýskráðir 2022, sem er hæsta hlutdeild rafbíla í heildarsölu fyrirtækisins frá upphafi, og voru MG og Hyundai vinsælustu merkin með alls 728 nýskráningar; 375 MG og 353 Hyundai.

Nýjasta rafbílamerkið hjá BL, fjórhjóladrifni lúxusbíllinn Hongqi, sem frumsýndur var í október, hefur einnig fengið góðar móttökur en alls voru tólf slíkir bílar afhentir í desember; 9 til einstaklinga eða fyrirtækja auk þess sem bílaleigurnar hafa tekið þrjá í notkun.