Fjórar bílasölur á nýhönnuðu bílasölusvæði

Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru óðum að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði sem Arkís hefur skipulagt fyrir lóðarhafa milli Hestháls 15 og Krókháls 7 í Reykjavík. Nýja bílasölusvæðið, sem er rúmlega 23 þúsund fermetrar að stærð, var sérstaklega skipulagt fyrir fimm bílasölur og alls um 800 bíla, og er eitt það stærsta sem skipulagt hefur verið fyrir sölu fólks- og sendibíla hérlendis.

Mikið hefur verið lagt upp úr snyrtilegum frágangi, svo sem með malbikun lóðar, sérhannaðri lýsingu og fleiru, en lóðin blasir við vegfarendum frá gatnamótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar. Fram undan er uppsetning hleðslustöðva fyrir rafbíla á lóðinni.
 
Umhverfisvænar lausnir við hönnun
Félagið K7 ehf. stendur að uppbyggingunni en að því standa eigendur bílaumboðanna BL og Öskju. Arkitektar Arkís sáum um hönnunina, þar sem áhersla var m.a. lögð á umhverfisvænar lausnir við hönnun húsnæðis og sölusvæðis. Má t.d. nefna að við hönnun útisvæðisins er frárennsli yfirborðsvatns beint um umhverfisvænar jarðvegsgrindur fráEcoraster sem framleiddar eru úr endurunnu plasti og hleypa þær yfirborðsvatninu gegnum sig og ofan í jarðveginn. Er því ekki þörf á frárennslislögnum á planinu. Þá er öll lýsing á svæðinu með björtum orkusparandi LED-ljósum sem gerir kleift að sýna og skoða bíla við góð skilyrði.
 
Vaxandi bílasölusvæði
„Þetta nýja bílasölusvæði verður bylting fyrir okkur og styður mjög við vaxandi starfsemi bílasölu í Hálsahverfi.  Fyrir okkur í Öskju er þetta mjög jákvætt enda erum við með aðstöðu fyrir öll okkar merki í næsta nágrenni“, segir Þorgeir Ragnar Pálsson, sölustjóri hjá Öskju.
„Við hjá Bílalandi erum afar ánægð að flytja okkar sölustarfsemi á þetta nýja bílasölusvæði.  Núna erum við mjög sýnileg og í alfaraleið þar sem Vesturlandsvegur og Suðurlandsvegur mætast“ segir Sigurður Ófeigsson framkvæmdastjóri Bílalands.