Fjórar nýjar brýr sunnan Vatnajökuls leysa einbreiðar brýr af hólmi

Fjórar nýar brýr á Hringveginum sunnan Vantajökuls voru opnaður með formlegum hætti fyrir helgina. Þetta eru brýr yfir Steinavötn, Fellsá, Kvíá og Brunná en með tilkomu þeirra leggjast af fjórar einbreiðar brýr á Hringveginum og fækkar úr 36 brúm í 32. Bygging brúanna var boðin út árið 2019 en framkvæmdum lauk í ár.

Einbreiðum brúm mun fækka meira á næstu árum. Vinna er þegar í gangi við Jökulsá á Sólheimasandi og við Núpsvötn og Hverfisfljót og að þeim framkvæmdum loknum verða einbreiðar brýr 29 talsins á Hringveginum. Þegar Hringvegurinn verður færður og styttur með nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót fækkar þeim um þrjár til viðbótar.

Útboðsferli vegna framkvæmda við Hornafjarðarfljót stendur yfir en niðurstöður munu liggja fyrir um næstu áramót og framkvæmdir hefjast á næsta ári. Þá eru áform um að framkvæmdir við fimm brýr til viðbótar fari af stað fyrir árið 2024.

Skipulega hefur verið unnið að því á síðustu árum að fækka einbreiðum brúm bæði á Hringvegi (1) og um landið allt. Árið 1990 voru einbreiðar brýr á Hringvegi hátt í 140 talsins. Þeim fækkaði hratt og voru orðnar um 60 í kringum 2006 og 42 árið 2011. Í dag eru einbreiðar brýr á Hringvegi (1) 32 talsins og fækkar enn á næstu árum sem fyrr segir.

Flestar einbreiðar brýr eru á Hringvegi á Austursvæði Vegagerðarinnar eða 26, en gæti fækkað niður í 19 árið 2024 ef áætlanir ganga eftir. Einungis tvær einbreiðar brýr eru á Hringvegi á Norðursvæði Vegagerðarinnar og 4 á Hringvegi á Suðursvæði.