Fjórum sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst

Samkvæmt tölum frá Vegagerðinni dróst umferðin í ágústmánuði á Hringveginum saman um 12 prósent miðað við umferð í sama mánuði í fyrra. Ekki hefur áður mælst viðlíka samdráttur í umferði í ágúst en þetta er ríflega fjórum sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst mestur. Útlit er fyrir að umferðin dragist saman um 12 prósent í ár sem er gríðalega mikill samdráttur á milli ára. 

Umferðin yfir 16 lykilteljara á Hringvegi dróst saman um tæp 12% í nýliðnum ágúst borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Þetta er langmesti samdráttur sem mælst hefur á milli ágústmánuða, eða um fjórum sinnum meiri munur en áður hefur mælst.  

Umferð dróst saman í öllum landssvæðum og mest yfir mælisnið á Austurlandi eða um rúmlega 27% en minnst yfir mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um tæp 6%.

Öll mælisnið sýndu samdrátt og það varð rúmlega 46% samdráttur um mælisnið á Mýrdalssandi en minnst dróst umferð saman yfir mælsnið við Úlfarsfell eða um tæp 4%.

Nú hefur umferðin dregist saman um 12% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta er ríflega tvisvar sinnum meiri samdráttur en áður hefur mælst á þessum árstíma.

Umferð hefur dregist mikið saman á öllum landssvæðum en mestur hefur samdrátturinn orðið á Austurlandi eða rúmlega 26% samdráttur en minnstur á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða tæp 6%.

Þá kemur fram að líkt og búast mætti við hefur umferðin dregist saman í öllum vikudögum, þegar horft er á tímabilið frá áramótum og það borið saman við sama tímabil á síðasta ári.  Hlutfallslega hefur mælst mestur samdráttur á sunnudögum en minnstur á þriðjudögum.  Frá áramótum hefur mest verið ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.