Fleiri vilja rafmagnsbíla

Samkvæmt nýrri bílakaupakönnun MMR hefur fjöldi þeirra sem kjósa helst að eignast rafmagnsbíl aukist verulega á síðustu árum. Samkvæmt könnuninni voru 42% þeirra sem hugðust kaupa sér nýjan bíl (ekki notaðan) innan þriggja ára sem vildu helst að bíllinn væri knúinn rafmagni sem aðal orkugjafa.

Þetta er ríflega tvöföldun frá árinu 2015, þegar 20% þeirra sem íhuguðu kaup á nýjum bíl sögðust helst vilja rafmagn sem aðal orkugjafa. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir diesel knúnum bifreiðum minnkað stórkostlega og fellur úr 47% í 28% milli ára.

Áhugi fyrir rafknúnum bílum mældist meiri meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins (46%) en þeirra sem bjuggu á landsbyggðinni (34%). Þá reyndist rafmagnið höfða frekar til þeirra sem sem voru eldri, höfðu hærri tekjur og með lengri skólagöngu að baki.

Breytileiki í afstöðu til aðal orkugjafa fyrir nýjan bíl reyndist hins vegar hvað mestur þegar horft var til a stjórnmálaskoðana fólks. Þannig voru ekki nema 15% þeirra sem studdu Flokk fólksins sem kusu helst rafknúinn bíl en á móti sögðust yfir 60% stuðningsfólks Pírata, Samfylkingar og Vinstri grænna helst kjósa rafmagn sem aðal orkugjafa fyrir nýjan bíl.