Fór yfir gagnstæðan vegarhelming og útaf á nýja hluta Reykjanesbrautar

The image “http://www.fib.is/myndir/Vantarvvegrid.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Á fréttavef Víkurfrétta er greint frá því að nýlega hafi bíll farið yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut án þess þó að slys hafi orðið á fólki. Fréttin er svohljóðandi:
-Slapp ómeiddur eftir að hafa lent utan vegar á Reykjanesbraut
Ökumaður bifreiðar slapp ómeiddur eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut og fór yfir gagnstæða akrein og hafnaði þar utan vegar. Slysið átti sér stað um klukkan 8:45 í morgun. Talið er að maðurinn hafi fengið einhverskonar krampa eða flog undir stýri.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík myndi það skapa mikið öryggi ef sett yrði upp vegrið, á Reykjanesbraut, á milli akreina. En ekki stendur til að setja slíkt upp.-
Við tökum undir með lögreglunni í Keflavík að það myndi skapa mikið öryggi ef sett yrði vegrið milli akbrauta á nýju Reykjanesbrautinni. Það væri óskiljanlegt kæruleysi að gera það ekki.