Foreldrar með unga sína rölta yfir umferðargötu
Nú fer sá tími í hönd þegar foreldrar með unga sína hika lítið eða ekkert við að rölta yfir umferðargötur og þá skipta gangbrautir og gangbrautarljós engu máli.
Á myndinni má sjá þegar mjög stoltir foreldrar með fimm afkvæmi töldu góða hugmynd að fara í labbitúr yfir götu í Grafarholti þegar umferðin var talsverð.
Bílar stoppuðu og gáfu þeim tíma, allt mjög fallegt, enda settust ungarnir á götuna til að hvíla sig aðeins. Þá reyndi bílstjóri að skipta mjög varlega um akrein til að geta haldið áfram að vinna. Það var ekki í boða og hópurinn hélt þá áfram. Gæti verið til að fá meiri athygli og foreldrar að sýna fallegu afkvæmin.
Skilaboðin eru: Förum varlega.