Forsala á nýrri kynslóð Nissan Leaf

Vegna mikils áhuga og fjölda fyrirspurna viðskiptavina BL varðandi nýjustu kynslóð rafmagnsbílsins Leaf sem Nissan setur á markað strax á nýju ári, 2018, hefur BL ákveðið að hefja forsölu á bílnum. Áætlað er að nýr Leaf verðir frumsýndur hjá BL fljótlega eftir áramót og er gert ráð fyrir að fyrstu bílarnir verði afhentir í mars.

BL hefur náð mjög hagstæðum samningi við Nissan í Evrópu um verð á nýjum Leaf sem umboðið mun geta boðið frá einungis 3.490 þúsundum króna.

Nissan Leaf er mest seldi rafbíll heims og á nýju ári kemur hann í gjörbreyttu útliti og búinn fjölda nýrra tæknilausna.

Mikil eftirspurn hefur þegar skapast eftir bílnum um allan heim, ekki síst í Evrópu og keppast umboðsaðilar við að tryggja sér bíla úr fyrstu framleiðslulotum verksmiðjunnar í Sunderland í Bretlandi þar sem bíllnn er framleiddur. Allar nánari upplýsingar veita söluráðgjafar BL við Sævarhöfða í Reykjavík.

Leaf hlaut í nóvember sín fyrstu alþjóðaverðlaun þegar Tækniþróunarsamtök neytenda í Bandaríkjunum (Consumer Technology Association - CES) veittu Leaf aðalverðlaunin á tækniráðstefnu samtakanna og titilinn „Besta nýsköpun ársins“.