Forseti ASÍ segir veggjöld ekki til umræðu nema eitthvað fáist í staðinn

Alþýðusambandið myndi ekki samþykkja veggjöldin án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Veggjöldin væru algerlega óútfærð og því erfitt að vera með þeim eða á móti. Þetta kom fram í ræðu Drífu Snædal, forseta Alþýðusambands Íslands, í ræðu hennar á formannafundi ASÍ í dag. Þetta kemur fram á eyjan.is

Eins og komið hefur fram hyggst ríkisstjórnin í samvinnu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ráðast í 120 milljarða uppbyggingu vegakerfisins og Borgarlínu á næstu 15 árum,  hvar veggjöld eiga að standa fyrir 60 milljörðum.

 „Ég hef ekki skotið loku fyrir það að veggjöld verði sett upp en það þarf að vera á forsendum jafnaðar, að það vinni ekki gegn okkar markmiðum og komi ekki niður á þeim sem síst skyldi,“ sagði Drífa og lagði til að nýta mætti tilfærslu í gegnum barnabætur og húsnæðisbætur í samhengi við nýja álagningu

„Hvort sem það eru grænir eða gráir skattar eða hvaða litapallettu við viljum setja á það. Við eigum að vera til viðræðu um að efla barnabótakerfin í samhengi við græna skatta og auðvitað eigum við að þrýsta á um almennilegar almenningssamgöngur, umhverfi og fólki til heilla. En að setja á almennan nefskatt eins og veggjöld sem er íþyngjandi fyrir almenning án þess að nokkuð komi í staðinn er ekki til umræðu,“ sagði Drífa ennfremur.