Framkvæmdir hefjast á Bæjarhálsi
Miðvikudaginn 18. júní hefjast framkvæmdir á Bæjarhálsi en um er að ræða fyrsta áfanga endurbóta á fimm gatnamótum við Höfðabakka. Framkvæmdirnar miða að því að bæta öryggi og flæði fyrir bæði akandi og gangandi vegfarendur.
Á Bæjarhálsi verða endurbætur gerðar á umferðarljósum og gönguleiðum, breiðari miðeyjur settar upp við Höfðabakka, hægribeygjuframhjáhlaup fjarlægð og götulýsing bætt. Engar götulokanir verða vegna framkvæmdanna, en búast má við tímabundnum þrengingum á meðan á þeim stendur.
Verkefnið er hluti af víðtækari umbótum á Höfðabakka sem kynntar voru fyrr í vor.