Framkvæmdir við Reykjanesbraut í fullum gangi

Vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar (41) frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi hefur gengið vel undanfarna tvo mánuði þrátt fyrir COVID-19. Fyrsta malbikun sumarsins hófst 28. apríl.

Tvöföldun Reykjanesbrautar á þessum kafla fer fram í mikilli nálægð við þunga umferð. Íbúabyggð er mikil í næsta nágrenni og þar eru einnig skólar og verslanir. Því er lögð mikil áhersla á öll öryggismál. Verið er að tvöfalda 3,2 km kafla auk þess sem setja á upp tvær nýjar göngubrýr og breikka brúna yfir Strandgötu.

Verktaki hefur haldið ótrauður áfram þrátt fyrir  COVID-19 faraldurinn en að jafnaði  hafa verið 45 starfsmenn á vinnusvæðinu.