Fyrsta banaslysið á þessu ári

 http://www.fib.is/myndir/Kross.jpg


Fyrsta banaslysið í umferðinni á þessu ári varð í Hörgárdal ekki langt frá bænum Krossastöðum um miðnætti aðfararnótt sunnudagsins. Ísing var og hálka þegar slysið varð. Bíllinn fór út af veginum og var talsvert hátt fram af honum þar sem slysið átti sér stað.

Ökumaðurinn sem var á fertugsaldri var einn í bílnum og samkvæmt fréttum var hann látinn þegar að var komið.